
01 · Þjónusta
Flísalagnir
Flísalagnir eru stór hluti af starfi Múrborgar. Við flísaleggjum baðherbergi, sturtur, eldhús, anddyri og gólf, jafnt í íbúðarhúsnæði sem atvinnuhúsnæði.
- Baðherbergi og sturtur
- Eldhús og veggir
- Gólfflísar og mynstraðar flísar
- Atvinnu- og verslunarhúsnæði
Góð flísalögn byrjar á réttum undirbúningi. Við göngum úr skugga um að undirlagið sé slétt og traust áður en fyrsta flísin er lögð, og skilum verkinu hreinu og snyrtilegu.
Meðal verkefna eru baðherbergi með mynstruðum gólfflísum, eldhús með svörtum subway-flísum og hvítri fúgu, og sérsmíðaðar flísalagðar hillur fyrir verslun Hríms hönnunarhúss í Kringlunni – 1.850 flísar.
Ertu með verk í huga?
Hafðu samband og við förum yfir verkið með þér – án skuldbindinga.


