Starfsmaður flotar gólf í bílakjallara
02 · Þjónusta

Flotun gólfa

Við flotum gólf í íbúðarhúsnæði, nýbyggingum og stórum atvinnurýmum. Gólfið er undirbúið, fræst þar sem þarf, og flotað í áföngum svo starfsemi geti haldið áfram.

  • Flotun í nýbyggingum
  • Endurbætur á eldri gólfum
  • Fræsing og undirbúningur
  • Stór rými og bílakjallarar

Eitt stærsta flotunarverkefni okkar var í bílakjallara Ráðhúss Reykjavíkur, þar sem gólfið var fræst og flotað í áföngum.

Í nýjum leikskóla við Kleppsveg steyptum við perluílögn í gólf beggja húsa, um 1.200 m².

Ertu með verk í huga?

Hafðu samband og við förum yfir verkið með þér – án skuldbindinga.