Fjölbýlishús við Bræðraborgarstíg í vinnupöllum með merki Múrborgar
05 · Þjónusta

Viðhald fasteigna

Við sjáum um viðhald fasteigna frá A til Ö – allt frá tröppuviðgerðum til heildarendurbóta á fjölbýlishúsum.

  • Múr- og steypuviðgerðir
  • Gluggaskipti og nýjar hurðir
  • Þakniðurföll og brunnar í svalagólfum
  • Tröppuviðgerðir

Í einu viðhaldsverkefni var skipt um glugga og aðalhurðir, þakniðurföllum bætt við, skipt um brunna í svalagólfum og ráðist í heilmiklar múr- og steypuviðgerðir. Að lokum var húsið endursteinað og kantar og vatnsbretti máluð.

Við vinnum líka á veturna: með kerfisplasti utan á vinnupöllum og hitablásurum undir plastinu höldum við réttu hitastigi fyrir múrviðgerðir og filteringu.

Ertu með verk í huga?

Hafðu samband og við förum yfir verkið með þér – án skuldbindinga.