Um Múrborg
Múrborg ehf. er löggiltur múrverktaki sem tekur að sér flísalagnir, flotun, múrverk, steiningu og viðhald fasteigna.
Við vinnum fyrir einstaklinga, húsfélög, fyrirtæki og opinbera aðila – á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Meðal annars höfum við unnið fjölda verka í Vestmannaeyjum.
Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, snyrtilegan frágang og góð samskipti frá fyrsta símtali til verkloka.

Fagmennska
Löggiltur múrverktaki með reynslu af stórum og smáum verkum.
Snyrtimennska
Við göngum vel um og skilum vinnusvæðinu hreinu.
Áreiðanleiki
Skýr samskipti og við stöndum við það sem við lofum.
Traustur samstarfsaðili
Rammasamningur Ríkiskaupa
Múrborg varð aðili að rammasamningi Ríkiskaupa um þjónustu iðnmeistara við ríkiseignir.
Keflavíkurflugvöllur
Í kjölfar útboðs Isavia samdi Múrborg um þjónustu við Keflavíkurflugvöll til þriggja ára.
Grænn verktaki
Í samstarfi við BM Vallá söfnum við plastumbúðum utan af múrvörum og skilum þeim til réttrar förgunar.
Ertu með verk í huga?
Hafðu samband og við förum yfir verkið með þér – án skuldbindinga.


